Life is like a zoo in a jungle

Slúðrið úr nesinu :=)

26.09.2007 13:38:11 / ingasinga

Hitt og þetta

Komiði nú sæl og blessuð

 

Í fréttum er þetta helst 8) 

Við erum búin að mála stofuna og erum byrjuð að parketleggja hana.:D  Þegar það er búið, þá verð ég að halda saumaklúbb ;)en það verður ekki í næstu viku. Næsta vika er nefnilega pökkuð af ýmsu. Ingvar er í fríi í skólanum á mánudaginn, ég er að fara á námskeið á þriðjudaginn og fimmtudaginn fyrir hádegi og eftir hádegi á fimmtudeginum fer ég í skólann. Þá er vettvangsferð til Sólheima í Grímsnesi. Svo er skóli á föstudaginn líka og á að mæta þá á dvalarheimilið Eir í aðra vettvangsferð. En til þess að líta nú sómasamlega út í öllum þessum ferðum, fer ég í klippingu og litun á föstudagsmorguninn og ég hlakka mikið til. Hárið er orðið svo slitið og hefur farið illa eftir allt sem á undan hefur gengið.

 

 Í síðustu viku hrapaði blóðgildið aftur út af henni Rósu frænku. Jamm en þetta er allt orðið betra núna en mér fannst þetta nú ekki beint spennandi. Blóðþynningarlyfið er ekki alveg að gera sig og einnig er ég með exem í lófunum og á iljunum. Fór líka til doksa í síðustu viku og fékk að vita ýmislegt. Þar á meðal að líklega hafi þetta farið svona eins og það fór út af blóðtappa í fylgjunni og fer ég í nánari rannsóknir síðar. Er núna í pásu frá doksum í bili.

 

Bróðir minn hringdi í gærkveldi, svo sem ekki frásögu færandi en ég hef ekkert heyrt í honum í langan tíma. Fannst gaman að tala við hann. Við erum svo sem ekki í miklu sambandi, en gott að vita af honum og vonandi heyrumst við aftur fljótlega.

 

Jæja er farin að læra, geri fátt annað þessa dagana

 

Kveðja

Inga Sigga


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 21:40:46 / ingasinga

Vildi deila þessu með ykkur

Mér er nú ekkert að landbúnaði............

· Allt fór afsíðis sem gat farið afsíðis........

· Þessi peysa er mjög lauslát......................

· Þau eiga þvílíka myllu, lifa eins og greifingajar og leika á alls eggi......(Geri aðrir betur....)

· Hann sló tvær flugur í sama höfuðið............

· ....þarna hefði ég sko viljað vera dauð fluga á vegg......

· Ég sá svo sætan strák að ég fór alveg fram hjá mér........

· Ég er svo þreyttur að ég henti mér undir rúm......

· Hann sat bara eftir með súrt eplið.................

· Og, nú, góðir farþegar, er einmitt fengitími melóna.....

· Ég hreinlega vissi ekki í hvorn fótinn ég ætti að setjast......

· Hann barasta kom eins og skrattinn úr heiðskíru lofti....

· Þar stóð hundurinn í kúnni...(Þar lá hundurinn grafinn...Þar stóð hnífurinn í kúnni.)

· Maður fer í bæinn til að sjá sig og sýna aðra...

· Svo handflettir maður r júpurnar...

· Já, fólk núorðið er svo loðið á milli lappanna.....

· Þetta er ekki upp í köttinn á Nesi.

· Betur sjá eyru en auga

· Ég er alveg stein vöknuð!(eftir að hafa verið stein sofandi)

· Ég er eitthvað svo sunnan við mig.(sagt á Akureyri)

· Það er ég sem ríð rækjum hér(að ráða ríkjum)

· Ég er búinn að vera andvana í alla nótt

· Róm var ekki reist á hverjum degi!( Sagði maður á Selfossi)

· Vinsamlegast beinhreinsið vínberin (í jólauppskrift)

· Lærin lengast sem lifa (maður lærir svo lengi sem maður lifir)


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 07:47:11 / ingasinga

Tilraun 5

Hæ hæ

Nú er að prufa einu sinni enn hvort að ég geti skrifað hingað inn.

Sonur okkar var jarðsettur 3. september. Athöfnin var mjög falleg og eftir hana fórum við í sumarbústaðinn hennar tengdó og fengum okkur kaffi og kökur. Mjög fínt, alveg eins og við vildum hafa það. Börnin voru mjög dugleg.

Skólinn er byrjaður hjá mér og hann gengur ágætlega, hef reyndar ekki fengið neitt námsefni í einum áfanganum en held að við eigum að leita á netinu til að leysa verkefnin. Held að þetta verði strembinn önn, vonandi tekst manni að halda áætlun :$ Ingvari gengur vel í grunnskólanum, hann er farin að ná rútínunni. Eftir skóla er tómstundaskóli en Ingvar er á biðlista að komast inn á hann. Við ætlum að láta hann vera til 4 alla daga þar, líka út af þvi að ég er í skóla og svo fer ég að vinna aftur í október líklega.

Ég get verið heima í fríi þar til 16. nóvember en það er langur tími finnst mér. Ætla líklega að vinna 50% til að byrja með og 50% sumarfrí. Verð bara að vera búin með allar ritgerðir áður en ég byrja að vinna aftur. Og Helgi fór að vinna í gær, vantar líka svo fólk og hann ákvað að byrja núna og sjá svo til hvenær hann tekur restina af fæðingarorlofinu.

Verð að segja fréttir af Dagbjörtu, að sjálfsögðu segir hún allt gott. Alltaf að læra stafi og henni finnst svo gaman í leikskólanum. Aðalvandamálið þessa dagana er að vilja vera í úlpu..... hún hefur varla farið í úlpu þetta sumar og núna er mun kaldara. Hún heldur að það sé alltaf 25 stiga hiti. :haha::haha::haha:

Jæja þarf að skutla krökkunum í skólanna þeirra og fara svo að læra og þvo þvotta.

Bæjó

Inga Sigga


» 3 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 6 desember
RSS tengill
Könnun
Hvenær ferðu í sumarfrí?
apríl/maí
0 atkvæði

maí/júní
0 atkvæði

júní/júlí
1 atkvæði

júlí/ágúst
2 atkvæði

ágúst/september
0 atkvæði

er ekki búin að ákveða neitt
0 atkvæði

hvaða sumarfrí?
2 atkvæði

Tek ekki sumarfrí
2 atkvæði

Annað
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 7
Dagsetning
19. mars 2010
Klukkan