Life is like a zoo in a jungle

Slúðrið úr nesinu :=)

04.03.2008 10:28:36 / ingasinga

Freyja Haraldsdóttir er

meiriháttar fyrirlesari! Hún kom í á vegum svæðisskrifstofunnar og hélt fyrirlestur hérna í Borgarnesi í gær. Þetta var meiriháttar og allt sem hún sagði er allt rétt en sorglegast finnst mér að það þurfi að berjast fyrir almennum mannréttindum. Mér finnst köllun hennar í lífinu alveg yndisleg og hún er brautryðjandi á sviði þjónustu fyrir fatlaða. En að þetta séu ekki almenn mannréttindi, það skil ég ekki. Nefni dæmi, hún varð að fara að sofa kl hálf ellefu á kvöldin af því að þá kæmi heimahjúkrunin, ekki gæti hún verið lengur úti t.d. ef það er ball eða árshátíð. Af því að henni fannst hún vera byrði, lokaði hún sig af en svo fór hún á ráðstefnu fólks með sömu fötlun og hún og það breytti lífi hennar. Þá fattaði hún að umhverfið og samfélagið var að gera hana mun fatlaðri, byrðin var ekki hennar heldur þurfti samfélagið að taka henni eins og hún væri. Freyja hefur staðið fast á sínu og hefur ekki látið bjóða sér skerta þjónustu, þó að það hafi verið ýtt að henni að flytja, þá hefur hún tekið alveg fyrir það.

Annars er allt gott að frétta héðan af heimilinu. Á laugardaginn fórum við vestur  og mér tókst að festa jeppann 8| og lét svo Helga moka hann upp :haha: Svo var farið að renna sér og já yndislegur dagur. Logn, sól, snjór og ekki hægt að hafa það betra. Sandra Dögg og Arnar Freyr kíktu upp eftir og verður að viðurkennast að það munaði minnstu að Yarisinn hennar Söndru færi jafn langt og jeppinn. :haha: Jeminn svo eru mýsnar ægilega svangar greinilega, búnar að éta hitt og þetta af fjórhjólinu hans Helga en alla vega þá er rafmagnið enn í lagi 8) Við fengum svo 3 næturgesti um kvöldið, en Rósa María, Jóhannes Vignir og Hafsteinn Þór voru hjá okkur. Það var fjör í kotinu og allt gekk vel.
Jæja best að reyna að slaka á, var á næturvakt og er að fara á næturvakt í kvöld

Knús
Inga Sigga
Rakel skrifaði
Þetta hefur greinilega verið magnaður fyrirlestur, og góð helgi:) Alltaf gaman að renna sér:)
Íris skrifaði
Váá hvað maður hefði alveg verið til í að vera á þessum fyrirlestri :).... Gaman að þið gátuð skemmt ykkur um helgina :) Ekki hissa á því að það hafi verið fjör hjá ykkur með þessa grislínga hehehe

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 6 desember
RSS tengill
Könnun
Hvenær ferðu í sumarfrí?
apríl/maí
0 atkvæði

maí/júní
0 atkvæði

júní/júlí
1 atkvæði

júlí/ágúst
2 atkvæði

ágúst/september
0 atkvæði

er ekki búin að ákveða neitt
0 atkvæði

hvaða sumarfrí?
2 atkvæði

Tek ekki sumarfrí
2 atkvæði

Annað
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 7
Dagsetning
21. mars 2010
Klukkan