..... blogg um veikindi, er komin með upp í kok af þeim í bókstaflegri merkingu.
Kl 8 í morgun var dinglað og fyrir utan stóð kona sem sagðist vilja þrífa heimilið mitt. Ooohhhh
Vildi óska að ég hefði bara stokkið á hana og sent hana inn. En ég var einum of heiðarleg og sagðist ekki eiga von á einhverjum í heimilisþrif. Konan vakti upp nágranna mína á neðri hæðinni en þau könnuðust ekki við neitt en svo sá ég hana rölta yfir götuna í annað hús. Þarf að blikka heimilisföðurinn þar og vita hvort hann geti ekki lánað mér dömuna í einn dag eða svo. 
Annars hef ég voða lítið að segja nema að ég vona að ég geti farið að vinna um helgina. Er orðin ansi leið á því að vera stöðugt heima.
Knús og kossar
Inga Sigga