Life is like a zoo in a jungle

Slúðrið úr nesinu :=)

06.12.2008 02:45:08 / ingasinga

Hitt og þetta

Þessi bloggsíða hefur ekki verið virk en best að henda inn smá innleggi :)

Um síðustu helgi fórum við í afmæli til Berglindar Ingu og það var mjög gaman, enda ekki oft sem ég og Helgi förum á smá skrall. Krakkarnir voru á Akranesi í dekri hjá Steinþóru og Barböru. Mjög gaman í afmælinu og sunnudagurinn var einnig viðburðurríkur en aðallega var ég eftir mig hehe.

Ég rakst á grein í hinu "virta" tímarit séð og heyrt.... Talað við stúlku vikunnar.... og hún var spurð um áhugamál, og hún taldi upp helling af þeim. En vakti áhuga minn að inn í þessari upptalningu taldi hún upp kærastann....haa kærasti sem áhugamál?????????? :haha: Ef ég fer að telja upp áhugamálin mín: Prjóna, lesa, Helgi, dýr og fleira....bwahahahaha, held að Helgi væri nú ekki sáttur við það.
Annars hef ég lítið að segja, er að henda inn myndum á barnalandssíður krakkana en það er löngu komin tími á það. Jólaskrautið er að verða komið upp hér á bæ og nokkrar jólagjafir komnar í höfn, sem betur fer. Engin jólabakstur enn sem komið er og jólakortaskrif bíða mín. En jólin koma þrátt fyrir allt þetta stúss :)
Knús
Inga Sigga


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.10.2008 21:23:46 / ingasinga

Erfitt að finna jákvæðar fréttir í dag

en krepputalið er að yfirgnæfa allt og alla. Ekki einu sinni barnaefnið á sínum stað, krakkarnir voru ekki glöð með það en þetta eru alvarlegar fréttir fyrir þjóðina, má ekki draga úr því. En samt sem áður, þá má ekki gleyma því að fólk þarf að fá smá jákvæðni. Held að margir fari í þunglyndi yfir fjárhagnum þessa dagana. Ég get verið ánægð með að vera ekki með erlend lán og að bíllinn er á gömlu TM láni. Greiðslurnar hafa ekki mikið hækkað hjá mér á einu ári, miðað við það sem ég hef heyrt frá fólki í kringum mig.

Annars var sauðamessan alveg meiriháttar. Skemmtum okkur mjög vel, verst að komast ekki á ballið en fer bara næst 8) Aldrei séð eins mikinn fjölda af fólki og eins marga hunda. Gaman af því.
Verð nú að segja að ég er ekki beint í besta skapinu, er með einhverja drullupest, hita og beinverki og kvef. Er að reyna að ná þessu úr mér, er ekki að nenna að vera veik. Hef svo mörg verkefni fram undan.

Jæja best að leggja sig, eða facebookast eitthvað.
Sí jú leiter
Inga Sigga


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.09.2008 10:37:53 / ingasinga

Íris klukkaði mig

og þá er að bregðast við því ekki satt 8)
Ég var víst klukkuð fyrir nokkrum dögum. Best að svara spurningunum.

1.4 Störf sem ég hef unnið við
Að skúra, vinna í eldhúsi, vinna á bakkaborði í sláturhúsi og Félagsliði

2. 4 Bíómyndir sem ég held uppá.
Stella í Orlofi, Dalalíf, Dirty Dancing og Guðfaðirinn

3. 4 Staðir sem ég hef búið á.
Múlastaðir, Akranes, Siglufjörður og Borgarnes

4. 4 bestu ssjónvarpsþættirnir.
Friends, Grey´s anatomy, Ally Mcbeal og Næturvaktin

5.4 matarkyns sem ég held uppá.
Lambalæri, Doritoskjúlli, Hangiket og ís made by your truely ;)

6.4 Bækur sem ég held uppá.
Stutt ágrip af sögu traktorsins á Úkraínsku, Bridget Jone´s Diaries, Bækur Arnaldar Indriðar

7. 4 bloggarar sem ég klukkaði eru
Rakel, Inga Rut, Steinþóra og Sandra Ósk

Annars þá hefur verið nóg að gera undanfarið. Ég hef unnið eins og svín 8| nei segi svona en það hafa komið langar vinnutarnir. Ekki nóg með það að ég er að vinna í dag....heldur þurfti ég að redda afleysingu í nokkra klst..... fundur í leikskólanum kl 17:15 og grunnskólanum kl 18-19:30 8|8|8|  pifff eins og maður hafi ekki annað að gera í dag ;)

Eins og margir aðrir, þá finnst mér ofboðslega gaman að kíkja á stærsta saumaklúbb landsins,  www.er.is :lol: Tek sjaldan þátt í umræðum nema því sem ég hef alveg einstaklega mikið vit á ( eða þykist hafa vit á ;) ) Gaman þykir mér hvað fólk hefur mismunandi skoðanir og mörg sjónarhorn koma fram. Eins og umræðurnar sem hafa skapast í kringum kompásmálið... sem ég hef nokkrar skoðanir á en ætla ekki að úrlista hér. Þekki ekkert til málsins nema það sem ég hef séð í þættinum og svo man ég svolítið eftir Ólsaranum frá því í denn.  En eitt get ég verið sammála um, Kompás hefði mátt vinna forsögu þessa máls betur. Alla vega finnst mér vantar eitthvað inn í þessa frásögn en það getur verið að ég sé bara að bulla. Ef á annað borð er verið að draga þetta í fjölmiðla....þá á að rannsaka þetta frá A-Ö....eða sleppa þessu alveg:!:

Jæja er farin í göngutúr....
sí jú leiter
Inga Sigga



» 1 hafa sagt sína skoðun

24.08.2008 01:41:43 / ingasinga

Rignir upp í nefið á mér

Það er ekki laust við það að ég hafi fengið taugaáfall þegar ég fletti á bls 40 í 24 stundum í dag. Bara vitnað í þetta blogg!!!! 8| En alla vega þá bloggaði ég um fyrirlestur Freyju Haraldsdóttur og svo var mynd af blogginu mínu og vitnað í greinina. Svo kommentaði Freyja á bloggið mitt. Gaman að þessu, spurning hvort að það hefði ekki mátt spyrja mig fyrst..... en það er önnur saga :haha:

Ætli þetta sé spark í rassinn að skrifa meira hér inn????

Kveðja Inga Sigga




» 2 hafa sagt sína skoðun

15.07.2008 13:12:53 / ingasinga

Er að hugsa um að færa mig

yfir mig á moggabloggið, ekki það að ég sé óánægð hér, heldur að mig langar svo að blogga um fréttirnar þar og hversu hroðalega þær eru unnar. Ég er ekki íslenskufræðingur.... en stafsetningavillur og málfarsvillur fara í mínar fínustu. Eins og að Tóti tönn svokallaði "moldveiddi"??? hmmmm maðurinn veiddi 64 laxa... ég myndi segja MOKVEIDDI!
Sorry varð að ausa úr skálum reiði minnar

Inga Sigga


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.07.2008 10:32:11 / ingasinga

Sumarfrí :)

Hellú alles 8)

Ég er svo ánægð með að hafa ekki eytt peningum í utanlandsferð þetta árið en það er svo sem ekki nýtt, hef ekki farið lengra en til Vestmannaeyja en það kemur að því að við bætum úr því. Nú togar í okkur að fara í útilegu um helgina... en það er margt annað sem þarf að gera um helgina.

Við Ingvar erum búin að vera ein heima fyrripart dags alla vikuna en ég náði mér í kvef í vikunni, þannig að sundferðum var frestað um sinn. Ingvar er orðin svo ábyrgur, hann fer ekki langt og er bara að hjóla um og leika við vini sína. Við fórum í Hagkaup í gær og versluðum úr svo að hann viti hvað tímanum líður. Nú eru engar afsakanir fyrir að koma of seint heim :haha:

Mamma, Pabbi og Barbara systir voru að veiða í Flókadalsánni um síðustu helgi og að sjálfsögðu veiddu þau vel, enda engir nægræðingar þar á ferð. Reyndar tókst þeim ekki að slá Helga frænda út en gekk engu að síður vel. Á land komu 40 laxar eftir 2 daga og 3 stengur. Mjög gott. Fyrir voru komnir 60 laxar úr ánni en urðu slétt hundrað eftir þeirra daga (ég veit að ég er skörp að reikna 8) )

Farið vel með ykkur
Góða helgi
Inga Sigga

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.06.2008 13:56:10 / ingasinga

Góðan daginn

Er ekki komin tími til að hleypa lífi í þetta blogg hérna?
Það hefur margt gerst undanfarið. Nú er ég orðin félagsliði og er svo stolt að vera búin með námið. Fékk þessar fínu einkunnir og nú er planið að tala við námsráðgjafa og spá hvað á að gera næsta haust. Aldrei að vita hvað mér dettur í hug... en mig langar samt í smá frí og fara að huga betur að fleiri hlutverkum sem ég á mér í lífinu. En.... Ágúst Einarsson Rektor Bifröst þrusaði yfir okkur ræðu á skólaslitunum og bað okkur um að taka ekki 1 ár frí frá skóla og drífa okkur áfram í það nám sem okkur dreymir um. Spurningin er, hvaða nám dreymir mig um????

Nú er Ingvar orðin svo stór... hann hjólar sjálfur heim úr og í tómstundaskólann en hann verður þar þessa vikuna og næstu og svo förum við öll í sumarfrí. Dagbjört er komin á nýja deild og kvaddi Ólátagarð með söknuði í fyrradag. Hún er að fara í hálskirtlatöku fljótlega og verður það fyrir miðjan júlí.

Helgi er núna orðin starfsmaður Síldar og fiskar, nú er búið að jarða Borgarnes Kjötvörur en ekki hækkaði hann í kaupi við það. Nú er komin úrbeiningarlína, sem eykur vinnuálagið mikið og afköstin verða meiri en ekki hækkar kaupið í samræmi við það.

Í gær fór ég á Sauðárkrók með samstarfsfólki mínu. Það var mjög gaman og.... NEI við hittum enga ísbirni. Bara blindan kött sem var alger dúlla og fullt af gestrisnum og indælum Skagfirðingum. Næstu helgi fer ég svo með skjólstæðingum mínum í jeppaferð og ég er bara farin að hlakka til. Þannig að það er nóg fram undan hér eins og vanalega en í dag hef ég verið í afslöppun, fyrir utan bankaferðir og svo sótti ég fartölvuna í viðgerð. Hún var eitthvað að mótmæla mikilli internetnotkun og netkortið hrundi 8|

Og þá er ég búin að ausa úr viskubrunninum
Inga Sigga


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 12:42:28 / ingasinga

Nýjustu fréttirnar...

eru þær að nú er augnsýking að herja heimasætuna hér og hún er í algeru dekri hjá mér þessa dagana. Veitir ekki af dekri til að hemja skapið en það er önnur saga.

Annars voru páskarnir alveg æðislegir, afmæli á skírdag en afmælisbarnið sjálft mætti með þeim síðustu í veisluna en það er bara ágætt. Tómas Ingi frændi var hjá okkur frá þriðjudegi fram á laugardag og það var æði að fá hann til okkar. Svo var ferming á mánudaginn og þvílík veisla. Að lokum var ég að vinna næturvaktir um páskana.... þannig að ritgerðirnar sem átti að skrifa um páskana, voru ekki skrifaðar.:$  En allt í vinnslu þessa dagana.

Annars er mig farið að langa í smá vor.... alla vega hita og sól. Reyndar er sól núna en frekar kalt.
 
Hef skelfilega lítið að segja nema farið vel með ykkur.

Kv. Inga Sigga

» 8 hafa sagt sína skoðun

07.03.2008 21:18:24 / ingasinga

Hefnd páskakanínunnar

Tuhhh... það má greinilega ekki svindla smá... ég nefnilega keypti mér páskaegg númer 2 frá Freyju og jemundur minn hvað það var gott. :haha:
Núna sit ég hér eins og unglingur á gelgjunni.... bóla hér og þar og alls staðar 8| Sniff.... ég er komin í páskaeggjastraff fram að páskum.

Páskaegg

Knús

Inga Sigga

    


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.03.2008 10:28:36 / ingasinga

Freyja Haraldsdóttir er

meiriháttar fyrirlesari! Hún kom í á vegum svæðisskrifstofunnar og hélt fyrirlestur hérna í Borgarnesi í gær. Þetta var meiriháttar og allt sem hún sagði er allt rétt en sorglegast finnst mér að það þurfi að berjast fyrir almennum mannréttindum. Mér finnst köllun hennar í lífinu alveg yndisleg og hún er brautryðjandi á sviði þjónustu fyrir fatlaða. En að þetta séu ekki almenn mannréttindi, það skil ég ekki. Nefni dæmi, hún varð að fara að sofa kl hálf ellefu á kvöldin af því að þá kæmi heimahjúkrunin, ekki gæti hún verið lengur úti t.d. ef það er ball eða árshátíð. Af því að henni fannst hún vera byrði, lokaði hún sig af en svo fór hún á ráðstefnu fólks með sömu fötlun og hún og það breytti lífi hennar. Þá fattaði hún að umhverfið og samfélagið var að gera hana mun fatlaðri, byrðin var ekki hennar heldur þurfti samfélagið að taka henni eins og hún væri. Freyja hefur staðið fast á sínu og hefur ekki látið bjóða sér skerta þjónustu, þó að það hafi verið ýtt að henni að flytja, þá hefur hún tekið alveg fyrir það.

Annars er allt gott að frétta héðan af heimilinu. Á laugardaginn fórum við vestur  og mér tókst að festa jeppann 8| og lét svo Helga moka hann upp :haha: Svo var farið að renna sér og já yndislegur dagur. Logn, sól, snjór og ekki hægt að hafa það betra. Sandra Dögg og Arnar Freyr kíktu upp eftir og verður að viðurkennast að það munaði minnstu að Yarisinn hennar Söndru færi jafn langt og jeppinn. :haha: Jeminn svo eru mýsnar ægilega svangar greinilega, búnar að éta hitt og þetta af fjórhjólinu hans Helga en alla vega þá er rafmagnið enn í lagi 8) Við fengum svo 3 næturgesti um kvöldið, en Rósa María, Jóhannes Vignir og Hafsteinn Þór voru hjá okkur. Það var fjör í kotinu og allt gekk vel.
Jæja best að reyna að slaka á, var á næturvakt og er að fara á næturvakt í kvöld

Knús
Inga Sigga

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 09:01:43 / ingasinga

Þetta er ekki......

..... blogg um veikindi, er komin með upp í kok af þeim í bókstaflegri merkingu.:$

 

            Kl 8 í morgun var dinglað og fyrir utan stóð kona sem sagðist vilja þrífa heimilið mitt. Ooohhhh :lol: Vildi óska að ég hefði bara stokkið á hana og sent hana inn. En ég var einum of heiðarleg og sagðist ekki eiga von á einhverjum í heimilisþrif. Konan vakti upp nágranna mína á neðri hæðinni en þau könnuðust ekki við neitt en svo sá ég hana rölta yfir götuna í annað hús. Þarf að blikka heimilisföðurinn þar og vita hvort hann geti ekki lánað mér dömuna í einn dag eða svo. :haha:

Annars hef ég voða lítið að segja nema að ég vona að ég geti farið að vinna um helgina. Er orðin ansi leið á því að vera stöðugt heima.

Knús og kossar

Inga Sigga 

           


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.02.2008 10:13:16 / ingasinga

heima er best

Það er best að vera heima en stundum þarf maður að bregða sér af bæ. Um 5 leytið á fimmtudagsmorguninn gerðist svolítið sem enginn réði við. Að vera kona á blóðþynningarlyfjum er ekki gott og án nánari umhugsunar var ég flutt með sjúkrabíl á Akranes. Missti mikið blóð og var bara drullluveik. En þetta var fljótt að lagast og ég var útskrifuð á föstudaginn. Vegna veðurs notaði ég ættingjanna i botn og lét þá stjana við mig þangað til á laugardaginn en þá fékk ég far með elskunni henni Berglindi Ingu. Ég er enn frekar dofin og úthaldslaus en þetta er allt að koma.

Annars segi ég allt gott, afslöppun á háu stigi í góða veðrinu og svo að læra.

knús og kossar

Inga Sigga


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 09:41:39 / ingasinga

Það var og

Komin öskudagur. Bolludagur og sprengidagur liðnir en þessir þrír dagar eru skemmtilegir en mestu vesenisdagar ársins. Engin smá undirbúningur og jólin voru að enda í gær :) alla vega finnst mér það. Dagarnir renna ansi mikið saman þessa dagana. Dagarnir einkennast af vinnu og lærdómi því að stutt er í næstu innilotu í skólanum og kennararnir æstir að klára sem mest fyrir næstu viku.

Eins og þið vitið var fyrirtækið sem Helgi vinnu hjá, Borgarnes Kjötvörur, selt um áramótin og fullt af fólki sagt upp og stórgripasláturhúsinu lokað. Þessir nýju eigendur koma fram við starfsfólið eins og skítin undir skóm sínum, það er mín skoðun. Starfsfólkið fréttir um uppsagnir og lokun sláturhússins í fjölmiðlum og ekki haft einu sinni fyrir því að hafa samband við trúnaðarmann fyrirtækisins, alveg skelfileg vinnubrögð. Engir fundir hafa verið með starfsfólkinu og allt í svo lausu lofti.

Jæja er búin að tappa af reiði minni og er farin að lesa lyfjafræðina

See ya

Inga Sigga


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 10:37:57 / ingasinga

Í mogganum í dag

er áhugaverð grein um forseta Bandaríkjanna. Þá er velt upp þeirri spurningu, hvaða eiginleika flestir forsetar bandaríkjanna eiga sameiginlegt. Jú það hafa allir nema 3 átt gæludýr. Og þá var spurt hvort að fólk vildi frekar forseta sem ætti gæludýr??? Kannski eru forsetar kannski með betri stefnuskrá með því að eiga gæludýr. Öllu er velt upp í kosningabaráttu, það er alveg ljóst.

Annars hafa veikindi einkennt heimilið undanfarna daga en þetta er vonandi allt að liða hjá. Dagbjört átti afmæli á laugardaginn, orðin 4 ára skvísa. Svo átti að vera partý í dag, en afmælisbarnið er með eyrnabólgu.

Best að fara að læra..... seinna...

Inga S.


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 12:43:11 / ingasinga

Ég er þá

lambakjötskærasta....hehe. Man eftir einni ágæti vinkonu minni sem sagði mér frá því hvernig hún náði sér í lambakjöt á Hólmavík um verslunarmannahelgina 1998..... tja hann var 4 árum yngri en hún 8) Annars er ég heima og er greinilega búin að næla mér í einhverja magapest. Ég sem ætlaði að vera svo dugleg í dag og taka til fyrir afmæli prinsessunnar á laugardaginn en það verður að frestast þar til á morgun.

 

Ég er með spurningu fyrir ykkur sem lesið bloggið mitt og ætlast til að allir svari mér....er þaggi :haha:

Hvað var það mikilvægasta sem þú lærðir á árinu 2007?

Mitt svar er að lifa lífinu því aldrei veit maður hvað næsti dagur ber í skauti sér.

knús á línuna

Inga Sigga


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Klukkan
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 6 desember
RSS tengill
Könnun
Hvenær ferðu í sumarfrí?
apríl/maí
0 atkvæði

maí/júní
0 atkvæði

júní/júlí
1 atkvæði

júlí/ágúst
2 atkvæði

ágúst/september
0 atkvæði

er ekki búin að ákveða neitt
0 atkvæði

hvaða sumarfrí?
2 atkvæði

Tek ekki sumarfrí
2 atkvæði

Annað
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 7
Dagsetning
20. mars 2010
Klukkan